Fréttir

Framboðslistinn á Akureyri samþykktur

19.2.2010

andrea-hjalmsdottir
andrea-hjalmsdottir

Tillaga uppstillingarnefndar um skipan framboðslista Vinstrihreyfingarinnar-græns framboðs fyrir bæjarstjórnarkosningar á Akureyri var samþykktur einróma á félagsfundi flokksins í gærkvöldi. Efstu 6 frambjóðendur voru valdir í forvali félagsmanna. Baldvin H. Sigurðsson þáði ekki þriðja sæti listans í samræmi við úrslit forvals og gerði uppstillingarnefnd tillögu um Jón Erlendsson í fjórða sæti.  Listann leiðir Andrea Hjálmsdóttir gullsmiður og félagsfræðingur og Edward H. Huijbens forstöðumaður er í öðru sæti. Vinstri græn fengju tvo fulltrúa kjörna í síðustu bæjarstjórnarkosningum.

1. Andrea Hjálmsdóttir, gullsmiður og félagsfræðingur

2. Edward H. Huijbens, forstöðumaður Rannsóknarmiðstöðvar ferðamála

3. Sóley Björk Stefánsdóttir, fjölmiðlafræðingur

4. Jón Erlendsson, vegagerðarmaður

5. Daði Arnar Sigmarsson, laganemi

6. Kristín Sigfúsdóttir, framhaldsskólakennari

7. Dýrleif Skjóldal Ingimarsdóttir, leikskólakennari og sundþjálfari

8. Björn Þorláksson, blaðamaður

9. Auður Jónasdóttir, viðskiptafræðingur

10. Bjarni Þóroddsson, nemi

11. Guðrún Þórsdóttir, nemi og talskona Alfs

12. Wolfgang Frosti Sahr, kennari

13. Sigmundur Sigfússon, læknir

14. Klara Sigríður Sigurðardóttir, skrifstofumaður

15. Margrét Ríkarðsdóttir, fosrtðuþroskaþjálfi

16. Stefán Þór Hauksson, laganemi

17. María Jóna Jónsdóttir, forstöðumaður

18. Björn Pálsson, starfsmaður í ferðaþjónustu

19. Jana Salóme Jósepsdóttir, nemi

20. Ragnar Pálsson, ellilífeyrisþegi

21. Frosti Meldal, skrifstofumaður

22. Málmfríður Sigurðardóttir, fv. alþingiskona

 

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica