Prófkjör Í-listans á Ísafirði 27. febrúar næstkomandi
Vinstri græn taka að venju þátt í starfi Í-listans á Ísafirði en valið verður á listann þann 27. febrúar næstkomandi. Rétt til þátttöku í prófkjörinu hafa allir þeir sem kosningarrétt eiga til sveitarstjórnar í Ísafjarðarbæ í vor og eru ekki flokksbundnir í aðra stjórnmálaflokka sem bjóða fram í bæjarfélaginu í vor. Í prófkjörinu verða kjörstaðir á Þingeyri, Flateyri, Suðureyri og Ísafirði. Hægt er að nálgast upplýsingar um frambjóðendur og framkvæmd forvalsins á heimasíðu þess.


