Prófkjör Bæjarmálafélagsins á Seltjarnarnesi 20. febrúar
Laugardaginn 20. febrúar verður prófkjör Bæjarmálafélags Seltjarnarness vegna vals frambjóðenda á Neslistann í sveitarstjórnarkosningunum að vori. Prófkjörið fer fram í Valhúsaskóla kl. 10 – 16 á laugardaginnog er opið öllum Nesbúum sem hafa öðlast kosningarétt 29. maí 2010.
Átta frambjóðendur keppa um sæti á Neslistanum. Meðal frambjóðenda eru tveir félagar í VG, þau Brynjúlfur Halldórsson og Hafdís Ósk Kolbeinsdóttir. Brynjúlfur býður sig fram í 2.- 4. sæti og Hafdís Ósk stefnir á 4.–5. sæti.
Brynjúlfur var í 4. sæti í kosningunum 2006 og vann að ýmsu á kjörtímabilinu, m.a. sem fulltrúi Neslistans í Umhverfisnefnd. Hann hefur gegnt formennsku í Bæjarmálafélaginu frá 2008.
Hafdís Ósk kemur hins vegar ný inn á svið stjórnmálanna og hefur örugglega margt fram að færa.
Bæjarmálafélag Seltjarnarness var stofnað 23. apríl 1990 og hefur starfað óslitið síðan þá. Tveir listar hafa verið í boði á Nesinu allt frá stofnun Bæjarfélagsins, þ.e. Neslistinn og listi Sjálfstæðisflokksins, sem hefur frá upphafi haft meirihluta í sveitarstjórn Seltjarnarness. Í þetta sinn verða framboðslistarnir hins vegar þrír, þar eð Samfylkingin ákvað að bjóða fram sér og hefur þegar haldið sitt prófkjör.
Upplýsingar um Bæjarmálafélagið og starfsemi þess eru að finna á http://www.xn.is/


