Opinn fundur um vistvænar veiðar
2.2.2007
Nú hittumst við vonandi mörg á opnum fundi um vistvænar veiðar í Saltfiskssetrinu í Grindavík eftir viku, fimmtud. 8. febr. kl. 20.
Dagskrá eitthvað á þessa leið
· Áhrif veiðafæra á lífríki hafsins. Erindi Stefáns Ragnarssonar, sérfræðings á Hafrannsóknastofnun.
· NN. Nýting og gæði sjávarfangs ? hvernig tengist það veiðiaðferðum?
· Stefna Vinstrigrænna í Sjávarútvegsmálum. Kolbrún Halldórsdóttir, alþingismaður:
· Um hvað verður kosið í vor? Ávarp Atla Gíslasonar, varaþingmanns og frambjóðanda í Suðurkjördæmi
· Fjörugar umræður (ég get lofað því!)
Kaffi verður á könnunni og hægt að skoða sig um í glæsilegu sjávarútvegssafni þeirra Grindvíkinga.
Vinstri grænir og vandamenn stefna að því að fjölmenna á fund sem óformleg samtök, Sól á Suðurlandi, munu halda í Árnesi við Þjórsá sunnudaginn11. febrúar um stóriðju- og virkjunarmálin. Stefnt er að því að taka rútu sem leggi af stað frá Reykjanesbæ kl. 10, stoppi á nokkrum stöðum á leiðinni til að skoða og taka upp fleira fólk. Þetta á að vera fjölskyldu-sunnudagsferð í sólskini og léttum dúr, taka með hljóðfæri, söngtexta, góða skapið og fleira tiltækt!
Takið frá daginn. Nánari upplýsingar síðar.
Senda grein