Endurtalning bréflega greiddra atkvæða í Reykjavík
Að lokinni endurtalningu þeirra atkvæða sem greidd voru bréflega í forvali VGR þann 6. febrúar síðastliðinn, er ljóst að niðurstöður talningar eru þær sömu og á kjördag. Viðstaddir endurtalningu voru umboðsmenn frambjóðenda, fulltrúar stjórnar VGR sem framkvæmdu talninguna, auk þess sem fulltrúi forvalsstjórnar mætti til að gera skil á kjörgögnunum. Því er unnt að staðfesta það sem þegar hefur komið fram að atkvæði sem greidd voru bréflega í forvalinu höfðu ekki áhrif á röðun í sex efstu sætin sem forvalið náði til. Eins og áður hefur komið fram vill stjórn Vinstri grænna í Reykjavík árétta að farið var að samþykktum reglum um framkvæmd forvalsins. Á það bæði við um frambjóðendur og forvalsstjórn.
Í samræmi við samkomulag það sem gert var á milli efstu frambjóðenda og stjórnar VGR birtast hér niðurstöður endurtalningar bréflegra atkvæða. Jafnframt eru birtar heildarniðurstöður talningarinnar fyrir sömu frambjóðendur, með og án bréflegra atkvæða.


