Fréttir

Rún Halldórsdóttir nýr formaður á Akranesi

15.2.2010

run halldors
run halldors

Aðalfundur Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs Akranesi og nágrenni var haldinn sl. laugardag. Þar urðu formannsskipti þegar Rún Halldórsdóttir, fráfarandi bæjarfulltrúi, var einróma kjörin formaður. Með henni í stjórn voru kjörin Hjördís Garðarsdóttir fyrrverandi formaður félagsins og Gunnar Ásgeir Einarsson. Fundurinn samþykkti að við uppröðun lista fyrir sveitastjórnarkosningar í vor skuli haldið forval sem framkvæmt verður á næstu þremur vikum. Gestir fundarins að þessu sinni voru alþingismennirnir Ásmundur Einar Daðason og Lilja Mósesdóttir. Urðu miklar umræður um stöðu heimilanna og aðgerðir í þágu þeirra.

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica