Fréttir

Yfirlýsing frá stjórn VGR - frambjóðendur snúa bökum saman

11.2.2010

VG_logo_slagord
VG_logo_slagord

Niðurstaða hefur náðst um þann ágreining sem ríkt hefur um framkvæmd forvals Vinstri grænna í Reykjavík milli stjórnar og efstu frambjóðenda.

Fram hefur komið að frambjóðendur fengu misvísandi upplýsingar um túlkun forvalsreglnanna frá kjörstjórn. Því er ljóst að enginn frambjóðenda braut reglur enda störfuðu þeir í góðri trú. Kjörstjórn hefur í framhaldinu ákveðið að víkja og segja af sér embætti. Við tekur ný uppstillingarnefnd enda ljóst að milli uppstillingarnefndar og þeirra sem skipa efstu sæti listans þarf að ríkja fullur trúnaður.

Til að tryggja að lært verði af þessum mistökum og til að efla lýðræðislegt starf innan flokksins mun stjórn VGR beita sér fyrir því að sérstök nefnd verði skipuð sem mun fara yfir aðferðafræði Vinstri-grænna við uppröðun á lista, þ.m.t. forvalsreglur félagsins. Nefndin geri tillögur til stjórnar flokksins um endurskoðun reglna um framkvæmd forvala og aðrar aðferðir við uppröðun á lista á vegum Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs.

Til að tryggja fullt gagnsæi og taka af allan vafa verða þau atkvæði sem greidd voru bréflega  endurtalin að viðstöddum umboðsmönnum frambjóðenda og fulltrúum stjórnar VGR. Þá er unnt að staðfesta það sem þegar hefur komið fram um að þessi atkvæði hafi ekki haft áhrif á röðun sex efstu sæta sem kosin voru bindandi kosningu. Þær tölur verði birtar sérstaklega á www.vg.is.

Að þessu sögðu munu frambjóðendur og stjórn Vinstri – grænna í Reykjavík snúa bökum saman og vinna af heilindum að því að sameina fólkið og flokkinn til sigurs í borgarstjórnarkosningum í vor.

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica