Dagskrá sveitastjórnarráðstefnu
Sveitastjórnarráðstefna Vinstri grænna verður haldin í Lágafellsskóla í Mosfellsbæ um helgina og hefs á föstudaginn klukkan fimm. Dagskráin verður blanda af fyrirlestrum og hópavinnu og lýkur klukkan 15 laugardaginn 13. febrúar. Allir félagar eru velkomnir en nauðsynlegt er að skrá sig til leiks hjá Hermanni Valssyni, hermann.valsson@reykjavik.is. Dagskrá ráðstefnunnar er svohljóðandi:
Föstudagur 12. febrúar 2010
16.45 Mæting í Lágafellsskóla í Mosfellsbæ
17.00 Karl Tómasson forseti bæjarstjórnar í Mosfelsbæ
17:15 Erindi um sveitastjórnarmál:
- Karl Björnsson framkvæmdastjóri Sambands íslenskra sveitarfélaga: Fjármál sveitarfélaga
- Sigurður Tómas Björgvinsson verkefnistjóri um sameiningu sveitarfélaga: Sameining sveitarfélaga
- Drífa Snædal framkvæmdastýra VG: Hugsjónir eru ekki nóg – um allt hitt sem þarf að vera til staðar
- Katrín Jakobsdóttir Mennta- og menningarmálaráðherra og varaformaður VG: Kortér í kosningar
Umræður
19.00 Sameiginlegur kvöldverður
20.00 Fundi frestað til morguns
Laugardagur 13. febrúar 2010
10.00 Hópavinna
12.00 Sameiginlegur hádegisverður
13.00 Niðurstaða hópa kynnt
15.00 Fundi slitið

