Ellefu efstu í Hafnarfirði
Á félagsfundi VG í Hafnarfirði var samþykkt uppröðun ellefu efstu á lista fyrir sveitastjórnarkosningar.
Oddviti listans er Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir núverandi bæjarfulltrúi, en í öðru sæti er Jón Páll Hallgrímsson, smiður. Listinn í heild sinni er svohljóðandi:
1. Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir kennari/bæjarfulltrúi
2. Jón Páll Hallgrímsson smiður
3. Jóhanna Marían Jónsdóttir sjúkraþjálfari
4. Gestur Svavarsson verkefnastjóri
5. Birna Ólafsdóttir skrifstofustjóri
6. Árni St. Jónsson formaður SFR-stéttarfélags
7. Arndís Pétursdóttir verkstjóri fanga
8. Sigurður Magnússon matreiðslumaður
9. Klara Hallgrímsdóttir grunnskólakennari
10. Nanna Pétursdóttir tölvutæknifræðingur
11. Gísli Ásgeirsson þýðandi


