Fréttir

Ályktanir frá aðalfundi VG í NV

21.10.2005

xv_ogo2.jpg Ályktun

Aðalfundur Félags VG á Norðurlandi vestra, haldinn á Sauðárkróki þ. 17. október 2005, mótmælir harðlega þeim áformun Landsvirkjunar að efna til samkeppni í grunnskólum landsins varðandi orkumál og Kárahnjúkavirkjun. Fundurinn telur forkastanlegt að Landsvirkjun skuli með þessum hætti ætla að þröngva áróðri sínum og innrætingu inn í störf grunnskólanna og reyna að snúa börnum á sveif með hrikalegustu náttúruspjöllum og umdeildustu framkvæmdum Íslandssögunnar.

Fundurinn hvetur skólastjórnendur, kennara, nemendur og foreldra þeirra til að hafna þessari samkeppni algjörlega.

Ályktun

Aðalfundur Félags VG á Norðurlandi vestra, haldinn á Sauðárkróki þ. 17. október 2005, hvetur stjórnvöld til að standa vörð um almannahagsmuni og tryggja að orkufyrirtæki landsmanna verði áfram eign þjóðarinnar. Vinstri grænir vara eindregið við alvarlegum afleiðingum þess að innleiða einkavædda einokun á raforkusölu til landsmanna.

Slíkt myndi ekki síst koma illa niður á almenningi og fyrirtækjum á landsbyggðinni.

Svandís Svavarsdóttir

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica