Fyrstu tölur í forvali VGR
Um þúsund atkvæði hafa verið greidd á kjörstað í forvali VG í Reykjavík og nokkrir tugir utankjörfundaratkvæða með póstkosningu. Eftir að 300 atkvæði hafa verið talin er staðan í efstu sætunum þessi:
Sóley Tómasdóttir með 140 atkvæði í fyrsta sætið
Þorleifur Gunnlaugsson með 155 atkvæði í fyrsta til annað sæti
Líf Magneudóttir með 137 atkvæði í fyrsta til þriðja sæti
Elín Sigurðardóttir með 108 atkvæði í fyrsta til fjórða sæti
Hermann Valsson með 111 atkvæði í fyrsta til fimmta sæti
Davíð Stefánsson með 105 atkvæði í fyrsta til sjötta sæti
Forvalið nær til efstu sex sætanna en í sætum 7-10 eru:
Snærós Sindradóttir
Friðrik Dagur Arnarson
Vésteinn Valgarðsson
Birna Magnúsdóttir
Næstu tölur eru væntanlegar á tíunda tímanum


