Fréttir

Fjölmenni á fundi í Dalabúð

6.2.2010

Jón Bjarnason
73BW8817

Jón Bjarnason og Ásmundur Einar Daðason voru með opinn fund í Dalabúð, Búðardal fimmtudaginn 4. febrúar sl. Fundurinn var mjög fjölmennur þar sem 40-50 manns mætti. Góður andi var í fundarmönnum og mikið var spurt. Fundargestir spurðu einkum út í ESB umsóknarferlið og lýsti fólk einnig yfir mikilli andstöðu við þær hugmyndir að leggja niður landbúnaðar- og sjávarútvegsráðuneytið. Þingmenn VG stefna á fleiri fundi í Norðvesturkjördæmi nú í vikunni og verða þeir boðaðir hérna á vefnum

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica