Landsfundur Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs
Við minnum á landsfund Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, sem settur verður föstudaginn 21. október nk. Við hvetjum öll til að mæta og taka þátt og sýna hve sterk Vinstri-græn eru. Afhending fundargagna hefst kl. 16:00 en setningarathöfnin klukkan 17:30 og verður fundurinn á Grand hótel.
Í Ýmishúsinu, Skógarhlíð 20, verður svo glæsilegur kvöldverður ásamt skemmtiatriðum og balli á laugardagskvöld. VGR lofar miklu stuði.
Verið öll velkomin.
Vonumst til að sjá sem flest
Vinstrihreyfingin - grænt framboð
Svandís Svavarsdóttir

