Fréttir

Aðalfundur vinstri græna norðurlandasamstarfsins

1.2.2010

 

Mánudaginn 1. febrúar 2010 var haldinn aðalfundur NGLA (Nordic Green Left Alliance) í Kaupmannahöfn. Í NGLA sitja vinstri grænu flokkarnir á Norðurlöndum, VG á Íslandi, Vänsterpartiet í Svíþjóð, SV í Noregi, SF í Danmörku og Vänsterförbundet í Finnlandi. Á síðasta ári gengu einnig Tjodvelid í Færeyjum og IA í Grænlandi til liðs við félagsskapinn. Formenn allra flokkanna voru á staðnum og framkvæmdastjórar og –stýrur flestra flokkanna einnig. Farið var yfir pólitíkina í hverju landi fyrir sig og ljóst að flokkarnir eiga margt sameiginlegt. Kreppan leggst mishart á löndin en flest horfa þau upp á atvinnuleysi í kringum 10%, nema Noregur þar sem atvinnuleysið er í sögulegu lágmarki. Markmið allra flokkanna er að styrkja Norrænt velferðarkerfi í sessi við erfiðar efnahagslegar aðstæður.

Ógnin af einkavæðingunni var mikið rædd og svörin við henni sem eru opinberar fjárfestingar sem skila sér fljótt inn í efnahagslífið og öflugt velferðarkerfi. Mikið er horft til Íslands og þeirrar miklu ábyrgðar sem Vinstri græn hafa tekið að sér að forgangsraða í niðurskurði og hreinsa upp eftir óhefta frjálshyggju síðustu ára. Yfirleitt var meiri áhugi á þeim flokkum sem sitja í ríkisstjórn, VG, SV í Noregi og IA á Grænlandi. Vänsterpartiet í Svíþjóð stefnir hraðbyri inn í ríkisstjórn eftir kosningarnar í september þar sem þeir eru í kosningabandalagi með sósíaldemókrötum og græningjum.

Vitaskuld var löngum tíma varið í umræður um ICESAVE og Vänsterpartiet sérstaklega lýsti baráttu sinni á sænska þinginu fyrir því að afnema skilyrði vegna lánveitinga til Íslands frá Svíþjóð. Því miður hafa aðrir flokkar á sænska þinginu ekki tekið undir þennan málflutning. Grænlendingar og Færeyingar ræddu sérstaklega um auðlindagjöld og fiskveiðistjórnunarkerfi og ljóst að flokkarnir hafa ólíka afstöðu til þess hvernig auðlindir verði best nýttar í þágu allra landsmanna þó að markmiðið sé hið sama.

Auk dægurmálanna var farið yfir málaflokka sem þessir stjórnmálaflokkar hafa hvílt sínar hugsjónir á svo sem umhverfismál og kvenfrelsismál sem eru ofarlega á blaði hjá öllum flokkunum. Sérstaklega var áhugavert að heyra kynjaða sýn sænsku fulltrúanna á skattalækkanir hægristjórnarinnar í Svíþjóð sem virðist koma körlum betur en konum og auka kynjaðan launamun.

Síðasta árið hefur Danmörk farið með formennsku í NGLA en nú var ákveðið að Færeyjar stýrðu starfinu næsta árið.

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica