Fréttir

Allt að gerast í Reykjavík

28.1.2010

Nú er allt komið á fullt í Reykjavík, enda stutt í forval fyrir borgarstjórnarkosningar. Vakin er athygli á eftirfarandi fundum og fréttum:

Heimasíða, net og forval
- ný heimasíða Reykjavíkurfélagsins er komin í loftið: http://www.vgr.is/
- settur hefur verið upp sérstakur forvalsvefur með upplýsingum um alla frambjóðendur: http://forval.vgr.is/
- stofnaður hefur verið hópur Reykjavíkurfélagsins á Fésbókinni: http://www.facebook.com/group.php?v=info&ref=ts&gid=266584885849

Fundir og forval
- í dag kl. 17-19 mæta Katrín Jakobsdóttir og Svanhildur Kaaber á Vesturgötu 7 til að ræða RÚV og menningarmál
- laugardaginn 30. janúar verður haldinn kynningarfundur frambjóðenda á Vesturgötu 7. Við tökum okkur auðvitað tíma í að kynnast frambjóðendum og verðum að frá kl. 11-14, en til að æra ekki óstöðuga verður reiddur fram léttur hádegisverður um miðbik fundar.

Gengið er inn í fundarsalinn á Vesturgötu í þjónustumiðstöðinni, Garðastrætismegin.

Kveðja,
stjórn VGR

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica