Ályktun um icesave frá stjórn svæðisfélags Vinstri Grænna á Akureyri og nágrenni
Stjórn svæðisfélags VG á Akureyri og nágrenni beinir því til þingflokksins að vinna saman að úrlausn hins gríðarlega vanda sem skapaðist í kjölfar efnahagshrunsins og láta icesave málið ekki þvælast þar fyrir. Þegar tveir deila er það sjaldnast aðeins annars sök og þessi vandasama milliríkjadeila verður ekki leyst öðruvísi en með samningum sem báðir aðilar sætta sig við. Um málið verður einfaldlega að semja sem fyrst á hvora leið sem þjóðaratkvæðagreiðsla fer. Mikilvægi þess að ljúka málinu getur engum dulist þar sem neikvæð efnahagsleg áhrif vegna óleystrar deilunnar munu aðeins bitna á þeim sem síst skyldi. Okkar er að draga þá til ábyrgðar sem fyrir málinu stóðu og er það skylda stjórnarinnar að fylgja þeim málum eftir. Goðgá væri að hleypa flokkunum sem stóðu fyrir hruninu að stjórnborðinu til að spilla fyrir málalyktum.


