Borgarstjórn samþykkti tillögu VG um að veita 100 kr. á hvern íbúa Reykjavíkur til hjálparstarfs á Haítí
Á borgarstjórnarfundi 19. febrúar 2010 var tillaga VG um aðstoð við íbúa Haítí samþykkt. Tillagan er svona: "Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkir að veita sem samsvarar 100 kr. á hvern íbúa í Reykjavík til hjálparstarfs vegna náttúruhamfara og yfirstandandi hörmunga á Haítí.Verði Rauða krossi Íslands falin ráðstöfun fjárins. Fjármagnið komi af liðnum ófyrirséð í fjárhagsáætlun." Hér á eftri fylgir ræða Þorleifs Gunnlaugssonar um málið:
Forseti borgarfulltrúar
Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, hefur hvatt þjóðir heims til að leggjast á eitt við að aðstoða íbúa Haítí. Hann hefur sagt að ekkert nema sameinað átak þjóða heims geti hjálpað Haítíbúum að yfirstíga erfiðleikana sem við blasi.
Þetta kemur heim og saman við fréttaflutning af svæðinu og Íslendingar sem vinna við hjálparstarf á eyjunni tjá sig um það að enginn verði samur eftir að hafa séð með eigin augum þá gríðarlegu eyðileggingu og þann mannlega harmleik sem við blasir
Hveragerðisbær hefur nú tekið af skarið og lagt sem nemur 100 kr. á hvern íbúa í bænum til hjálparstarfsins. Við í Reykjavík eigum að grípa þennan bolta og gera slíkt hið sama.
Íbúafjöldi Reykjavíkur 1. des. 2009 er 118.427. þannig værum við fyrir hönd Reykvíkinga að láta kr. 11.842.700. renna til hjálparstarfsins. Fari önnur sveitarfélög að fordæmi Hveragerðisbæjar og Reykjavíkur safnast kr. 31.759.300 þar sem Íbúafjöldi landsins 1. des. 2009 er 317.593.
Forseti borgarstjórn
Ég legg til að þessi tillaga verði afgreidd sem tillaga allrar borgarstjórnar. Með henni erum við, fyrir hönd borgarbúa að leggja okkar að mörkum til fólks í sárri neyð og um leið að hvetja aðrar sveitarstjórnir til að gera slíkt hið sama og fylgja þannig góðu fordæmi íbúa Hveragerðis.
Síðast þegar borgarstjórn lét til sín taka á þessu sviði var það þegar samþykkt var einróma tillaga um að veita 10 milljónum til hjálparstarfs vegna flóðanna í suðaustur Asíu. Þá tók þjóðin höndum saman í átaki sem sameinaði allar hjálparstofnanir, sjónvarps og útvarpsstöðvar og fjölda annarra aðila sem náði hámarki í sameiginlegum sjónvarpsþætti sjónvarpsstöðvanna.
Ég vil nota þetta tækifæri til að hvetja til þess að það þetta verði gert núna og höfða þá sérstaklega til hjálparsamtaka, sjónvarps og útvarpsstöðva því tilefnið er ekki síðra nú en þá.
Tillagan er þá þessi og hún er í nafni allra borgarfulltrúa :
"Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkir að veita sem samsvarar 100 kr. á hvern íbúa í Reykjavík til hjálparstarfs vegna náttúruhamfara og yfirstandandi hörmunga á Haítí.Verði Rauða krossi Íslands falin ráðstöfun fjárins. Fjármagnið komi af liðnum ófyrirséð í fjárhagsáætlun."

