Auglýsing um forval Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs fyrir bæjarstjórnarkosningarnar í Kópavogi 2010
Forval Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs fyrir bæjarstjórnarkosningarnar í Kópavogi í vor verður haldið laugardaginn 27. febrúar. Valið verður í sex efstu sæti framboðslistans og er kjörið opið öllum félagsmönnum í VG í Kópavogi, en kjörskrá verður lokað á miðnætti þann 17. febrúar.
Framboðsfrestur fyrir forvalið rennur út á miðnætti þann 30. janúar. Framboð skal tilkynna skriflega til kjörstjórnar. Það má gera rafrænt með tilkynningu á netfang kjörstjórnar forval.kopavogur@vg.is.
Frestur til að stinga upp á frambjóðendum rennur út á miðnætti þann 24. janúar. Uppástungur skulu vera skriflegar og má senda þær rafrænt á netfang kjörstjórnar.
Í kjörstjórn eru Þóra Elfa Björnsson, Lára Jóna Þorsteinsdóttir og Einar Ólafsson og er hann formaður kjörstjórnar. Netfang kjörstjórnar er forval.kopavogur@vg.is. Nánari upplýsingar má fá með því að senda póst í netfang kjörstjórnar eða hjá formanni kjörstjórnar í símum 846 1355 og 564 2854.
Hægt er að sækja um inngöngu í flokkinn gegnum heimasíðu VG (www.vg.is – Ganga til liðs við VG) eða með því að hafa samband við skrifstofu flokksins eða stjórnarmenn og kjörstjórn í Kópavogi. Hafi það verið gert fyrir miðnætti 17. febrúar öðlast nýir félagar kosningarétt í forvalinu skv. reglum um það.
Ný heimasíða VG í Kópavogi, http://vgkopavogur.is/, verður opnuð í lok janúar og þar verða birtar upplýsingar um frambjóðendur, framboðsfundi og framkvæmd forvalsins.


