Flokksráðsfundur hafinn
Félagar í Vinstri grænum á Akureyri tóku vel á móti flokksmönnum af öllum landshornum þegar flokksráðsfundur var settur á hótel KEA síðdegis í dag. Vel á fimmta tug ályktana liggur fyrir og er ljóst að mikið starf verður unnið næsta sólarhringinn en fundinum verður slitið klukkan þrjú á morgun.
Eftir gott erindi Kolbeins Stefánssonar um baráttuna gegn auðvaldshyggjunni setti Katrín Jakobsdóttir fund, en hún er formaður flokksráðsins. Steingrímur J. Sigfússon fór yfir málefni líðandi stundar og staldraði sérstaklega við Icesave samninginn eins og við var að búast. Frá ræðu hans hefur verið greint í fréttum.
Nú taka við almennar stjórnmálaumræður fram eftir kvöldi sem halda áfram á morgun. Búast má við fjörugum umræðum enda eru á annað hundrað manns á fundinum og mörgum liggur margt á hjarta.

