Fréttir

Frestur til að stinga upp á fólki í framboð rennur út á morgun

8.1.2010

Ákveðið hefur verið að halda forval í allavega þrem svæðisfélögum VG; á Akureyri, í Reykjavík og í Kópavogi. Frestur til að stinga upp á fólki í framboð í Reykjavík og á Akureyri rennur út á morgun, laugardaginn 9. janúar.

Foval í Reykjavík

Laugardaginn 9. janúar rennur út frestur til að stinga upp á frambjóðendum í forval VG fyrir borgarstjórnarkosningarnar í Reykjavík í vor. Tillögur skal senda á netfang kjörstjórnar: forval.reykjavik@vg.is. Framboðsfrestur rennur svo út viku síðar.

Forvalið verður haldið þann 6. febrúar n.k. en kjörskrá vegna þess verður lokað 27. janúar.

Forval í Kópavogi

Svæðisfélagið í Kópavogi hefur samþykkt að halda forval vegna sveitastjórnarkosninganna þann 27. febrúar næstkomandi. Framboðsfrestur er til 30. janúar og frestur til að stinga upp á fólki til framboðs er 24. janúar. Nánari upplýsingar eru væntanlegar á heimasíðu VG. 

Forval á Akureyri

Forvalið í VG á Akureyri fer fram 6. febrúar næstkomandi. Framboðsfrestur rennur út laugardaginn 16. janúar en félagsmönnum er heimilt að koma með ábendingar um vænlega frambjóðendur til 9. janúar. Það skal gert í netfangi kjörstjórnar jer@akureyri.is.

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica