Fréttir

Þegar dag tekur að lengja!

24.12.2009

frost
frost

Þrátt fyrir skammdegismyrkur og veðragang eru vetrarsólstöður, jól og áramót kærkominn tíma á sinn hátt. Þá gefst örlítið næði frá hversdags amstrinu, til samveru með fjölskyldu og vinum, til þess að horfa yfir farinn veg sem og að huga að framtíðinni. Þegar horft er til baka yfir árið sem nú er að renna sitt skeið á enda verður seint annað sagt en það hafi verið bæði viðburða- og afdrifaríkt. Vinstrihreyfingin – grænt framboð hlaut eldskírn sína í ríkisstjórn, kom fyrirvaralítið að stjórn landsins við einhverjar erfiðustu aðstæður sem nokkur ríkisstjórn lýðveldisins hefur glímt við. Í kjölfarið fóru fram kosningar og þar hlutum við sterkt umboð frá kjósendum. Aðrar kosningarnar í röð urðum við Vinstri græn helsti sigurvegarinn, fórum úr tæplega 9% fylgi í rúm 14% í kosningum vorið 2007 og síðan í tæp 22% sl. vor. Þingmannafjöldinn rúmlega tvöfaldaðist, úr 5 í 14. Saga íslenskra flokkastjórnmála geymir enga hliðstæðu við sögu okkar Vinstri grænna og það segir líka sína sögu að þrátt fyrir allt sem gengið hefur á skulum við þó vera stödd þar sem við erum í dag. Það endurspeglar mikinn styrk og hversu gott starf liðsmenn VG hafi unnið á þeim 10 árum sem liðin eru frá því hreyfingin var stofnuð.

Því verkefni sem við, ásamt samstarfsflokki okkar í ríkisstjórn, tókum að okkur í febrúar síðastliðnum má líkja við starf bónda sem tekur við býli í órækt og niðurníðslu. Á bænum er allt í upplausn, því fráfarandi búskussi taldi sig geta dvalið í kaupstaðnum á meðan býlið sæi um sig sjálf. Aðrir hafa líkt þessu við rústabjörgun eftir landskjálfta og enn aðrir við björgun á strandstað. Hvað sem samlíkingum líður er starfið augljóslega ekki auðvelt, tæpast öfundsvert en um leið óendanlega mikilvægt. Á meðan á því stendur er mikilvægt að halda einbeitingunni, missa ekki sjónar á takmarkinu né trúna á að verkið heppnist. Takist það munum við og samfélagið allt uppskera ríkulega. Sem betur fer fékk frjálshyggjan að lokum ekki meiri tíma. Hrun hennar varð mikið og óheyrilega kostnaðarsamt en um leið er jarðvegurinn frjór. Það er eftirspurn eftir annars konar pólitík, öðrum gildum, öðru og heilbrigðara samfélagi en hér var keppst við að búa til uns allt endaði með ósköpum. Verkefnið er sambland af mörgu í senn; björgunaraðgerðum, hreinsun og tiltekt, því að leggja grunn að framtíðinni og hefjast handa um uppbygginguna sjálfa.

Þó árið hafi vissulega verið erfitt og mikil barátta sé enn framundan má ekki missa sjónar á hinu heldur sem hefur áunnist. Þar er skemmst að minnast að um ármótin verður tekið upp nýtt tekjuskattskerfi sem ver hina tekjulægstu fyrir skattahækkunum og dreifir byrðunum á allt annan og réttlátari hátt en skattkerfi frjálshyggjunnar gerði. Það þurfti Vinstrihreyfinguna  – grænt framboð til. Af mörgu öðru er að taka. Þar má nefna hærri grunframfærslu námslána, skýra og metnaðarfulla stefnu í loftslagsmálum, kaup á vændi hafa verið bönnuð, lög sem bæta stöðu sprotafyrirtækja hafa verið samþykkt, varnarmálastofnun verður lögð niður á næsta ári, allt lagaumhverfi fjármálamarkaðarins verður endurbætt, rannsókn á aðdraganda hrunsins hefur verið stórefld, m.a. með aðkomu Evu Joly. Svona mætti lengi telja.

Eitt stærsta og mikilvægasta verkefnið snýr að endurreisn efnahagslífsins. Þar hefur mikill árangur náðst og má nefna endurreisn bankanna þriggja með 250 milljarða króna minni tilkostnaði ríkissjóðs en upphaflega var áætlað sem aftur leiðir til tugmilljarða lægri vaxtakostnaðar á þessu ári og hinum næstu. Þá hefur framvindan orðið um margt hagstæðari en áætlanir höfðu gert ráð fyrir. Atvinnuleysi er umtalsvert minna en spáð var, samdráttur landsframleiðslu sömu leiðis, verðbólga er á niðurleið og orðin sú minnsta í um tvö ár og loks fara vextir nú aftur lækkandi og hafa ekki verið lægri í fjögur ár. Ekki þarf að fjölyrða um mikilvægi þess að slík þróun haldi áfram. Aukinn stöðugleiki, lækkandi verðbólga og  alveg sérstaklega, eðlilegir vextir eru mikilvægar forsendur þess að sá viðsnúningur verði í hagkerfinu á næsta ári sem við vonumst eftir.

Nú með nýju ári og hækkandi sól er sem betur fer að sjá fyrir endann á mörgum erfiðustu og þyngstu verkefnum björgunarstarfsins. Þá verður hægt að beina kröftum af meira alefli að uppbyggingarstarfinu. Um leið gefst okkur Vinstri grænum betra tóm til að þétta raðirnar og funda, jafnt innávið sem útávið. Ég bíð þess spenntur að færi gefist til að fara meira út fyrir múrana við Arnarhólinn og vonast til þess að hitta ykkur þá sem flest.  Framundan er enn ein törnin með sveitarstjórnarkosningum að vori og þar eigum við Vinstri græn bæði sigra að verja og ný lönd að vinna.

Fyrir hönd Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs færi ég ykkur öllum, nær og fjær, bestu jóla- og nýárskveðjur.

Steingrímur J. Sigfússon

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica