Fréttir

Forval á Akureyri

17.12.2009

Á félagafundi svæðisfélags VG á Akureyri og nágrenni var samþykkt að forval yrði fyrir sveitarstjórnarkosningar á Akureyri laugardaginn 6. febrúar á 11 ára afmæli flokksins. Valið verður í sex efstu sæti framboðslistans og verður jafn hlutur kynja tryggður við endanlega uppröðun ef þörf krefur, gegnum paraðan fléttulista. Framboðsfrestur rennur út laugardaginn 16. janúar. Félagsmönnum heimilt að koma með ábendingar um vænlega frambjóðendur til 9. janúar. Framboðum og ábendingum skal komið á netfang kjörstjórnar: jer@akureyri.is

 

Fulltrúar í kjörstjórn eru: Jón Erlendsson, Jónína Hjaltadóttir, Sóley Björk Stefánsdóttir, Anna Helgadóttir og Þorsteinn Óla Þorbergsson.

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica