Fréttir

Lýst eftir framboðum

14.12.2009

 

Kjörstjórn Vinstri grænna í Reykjavík lýsir eftir framboðum í forvali flokksins fyrir komandi borgarstjórnarkosningar. Forvalið verður haldið þann sjötta febrúar n.k. í samræmi við reglur sem samþykktar hafa verið á félagsfundi.

Valið verður í sex efstu sæti framboðslistans og verður jafn hlutur kvenna tryggður við endanlega uppröðun ef þörf krefur. Framboðsfrestur rennur út laugardaginn sextánda janúar. Jafnframt er félagsmönnum heimilt að koma með ábendingar um vænlega frambjóðendur eigi síðar en til níunda janúar.

Framboðum og ábendingum skal komið á netfang kjörstjórnar: forval.reykjavik@vg.is 

Fulltrúar í kjörstjórn eru: Andrés Ingi Jónsson, Ármann Jakobsson, Helga Björg Ragnarsdóttir, Sigríður Kristinsdóttir og Stefán Pálsson.

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica