Ítarlegar tillögur Vinstri grænna til að bæta aðbúnað barna og tekjulágra í Reykjavíkurborg
Þessar tillögur lagði Þorleifur Gunnlaugsson, borgarfulltrúi fram í borgarráði í dag. Þeirra á meðal eru tillögur um að nýta hækkun útsvars til hækkunar fjárhagsaðstoðar og fræðslumála, systkynaafslátt á skólamáltíðir og svo mætti áfram telja. Hér að neðan má sjá hvernig VG vill forgangsraða upp á nýtt í fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir 2010
Tillögur að breytingum:
Að útsvar verði hækkað upp í 13,2% og þeim 500 milljónum sem af því leiða verði varið með eftirfarandi hætti:
a. Kr. 240.000.000 verði varið í hækkun á fjárhagsaðstoð og heimildargreiðslum
b. Kr. 5.000.000 verði varið í sérstakan lið á Velferðarsviði að nafni desemberuppbót, þannig að fólk sem þiggur fjárhagsaðstoð með börn á framfæri fái uppbót sem nemur kr. 12.500 á hvert barn í desember.
c. Kr. 119.000.000 verði verði varið í framlag til grunnskólanna og veittur verði frekari systkinaafsláttur á skólamáltíðir. Þannig verði aðeins tekið gjald fyrir eitt barn í heimili en önnur börn með sama lögheimili fái gjaldfrjálsar skólamáltíðir.
d. Kr. 20.000.000 verði varið í framlög til grunnskólanna og þannig verði tryggðar vettvangsferðir á þeirra vegum, þó þannig að kostnaður falli ekki á heimilin.
e. Kr. 11.500.000 verði varið í að hækka styrki til fræðslumála og þróunarsjóð.
f. Kr. 27.000.000 verði varið í fjölgun starfsfólks hjá Barnavernd Reykjavíkur
g. Kr. 20.000.000 verði varið í að efla markaðsstarf Höfuðborgarstofu og sinna landvörslu í Reykjavík í sumar.
2. Að liðurinn atvinnumál ungs fólks verði felldur út en þeim 150 milljónum sem þar er gert ráð fyrir verði varið með eftirfarandi hætti:
a. Kr. 40.000.000 verði færðar yfir á framlag til atvinnumála á íþrótta- og tómstundasviði.
b. Kr. 80.000.000 verði færðar á sérstakan lið atvinnuátaksverkefna hjá mannauðsskrifstofu.
c. Kr. 15.000.000 verði færðar á sérstakan lið atvinnuátaksverkefna hjá mannréttindaskrifstofu.
d. Kr. 15.000.000 verði færðar yfir á framlag til námsflokka Reykjavíkur.
3. Að af liðnum ófyrirséð verði teknar kr. 160.636.947 og þeim varið með eftirfarandi hætti:
a. Kr. 42.632.288 verði færðar yfir á framlag til frístundaheimila svo áfram verði hægt að bjóða upp á þjónustu fyrir hádegi á þeim dögum sem hefðbundið skólastarf fellur niður.
b. Kr. 33.004.659 verði færðar yfir á framlag til frístundaheimila svo áfram verði hægt að miða við óbreytta útreikninga á fjölda barna á hvern starfsmann.
c. Kr. 35.000.000 verði færðar yfir á framlag til frístundamiðstöðva svo hægt verði að efla frístundastarf með börnum í 5.-7. bekkjum grunnskólanna á árinu 2010.
d. Kr. 50.000.000 verði færðar yfir á framlag til atvinnumála á íþrótta- og tómstundasviði.
4. Að kr. 15.000.000 verði færðar af liðnum sérfræðiaðstoð fyrir borgarstjórnarflokka yfir á ferlimál fatlaðra.
5. Að kr. 127.000.000 verði færðar af liðnum þjónustutrygging og þeim varið með eftirfarandi hætti:
a. Kr. 90.000.000 verði færðar á framlag til leikskóla Reykjavíkur til að tryggja að áfram geti börn hafið leikskólagöngu þegar pláss losna yfir sumartímann og til að draga úr hagræðingarkröfu á hvern leikskóla.
b. Kr. 10.000.000 verði færðar yfir á námsstyrki
c. Kr. 27.000.000 verði færðar yfir á liðinn sameiginleg starfsmannaþjónusta til að tryggja afleysinu vegna undirbúningstíma leikskólakennara.
6. Að lántaka vegna framkvæmda verði hækkuð sem nemur kr. 300.000.000 og þeirri upphæð verði varið í uppbyggingu íþróttahúsa við Norðlinga- og Sæmundarskóla.
Borgarráðsfulltrúi Vinstri grænna mun einnig leggja fram tillögu um verðbætur á samningum við sjúklingasamtök, mannréttindasamtök og líknarfélög og áskilur sér rétt til að leggja fram frekari breytingatillögur að fundi loknum.

