Starfskraftur óskast í Suðurgötuna
Óskað er eftir manneskju til starfa fyrir Vinstrihreyfinguna – grænt framboð. Starfsviðið er hefðbundin skrifstofustörf, símavarsla, móttaka gesta, félagaskráning og annað sem til fellur í stórum flokki. Viðkomandi mun vinna með framkvæmdastýru flokksins á Suðurgötu 3 í Reykjavík. Æskilegt er að viðkomandi sé þjónustulundaður, greiðvikinn, sveigjanlegur, hafi þekkingu á flokknum, búi yfir tölvukunnáttu og hugsjónum til góðra verka. Nánari upplýsingar um starfið veitir Drífa Snædal í netfangi drifa@vg.is. Umsóknir skulu berast: Vinstrihreyfingin – grænt framboð, pósthólf 175, 121 Reykjavík, fyrir 15. desember. Æskilegt er að nýr starfskraftur geti tekið til starfa fljótlega á nýju ári.

