Fréttir

Hart tekist á um fjárlagagerð hjá borginni

24.11.2009

Verið er að leggja lokahönd á fjárlögin hjá borginni þessa dagana og forgangsröðun meirihlutans kemur skýrt í ljós. Miskunnarlaus niðurskurður í menntamálum og velferðarmálum á meðan enn er gælt við framkvæmdir sem mega bíða betri tíma. Á fundi velferðarráðs í dag bókaði fulltrú VG, Drífa Snædal, eftirfarandi:

Fulltrúi Vinstri grænna í Velferðarráði Reykjavíkurborgar getur ekki fallist á þær forsendur sem gefnar hafa verið við gerð fjárhagsáætlunar Reykjavíkurborgar fyrir árið 2010. Ber þar hæst óbreytt útsvarsprósenta þrátt fyrir aukinn rekstrarkostnað og minni tekjur borgarinnar. Tilgangur útsvars er að fjármagna sameiginlegan rekstur borgarbúa og því eðlilegt að þegar harðnar í ári dreifist kostnaðurinn með sanngjörnum hætti á borgarbúa. Fullnýtt útsvarsprósenta gæti skapað borginni 630 miljónir króna í tekjur árið 2010. Niðurskurðurinn er því enn meiri en nauðsyn krefur að mati Vinstri grænna. 

Úthlutun ramma ber lítil merki um nýjar áherslur í forgangsröðun. Skorið er niður með tiltölulega flötum hætti, þó krafan sé meiri á svið sem varða skipulag og framkvæmdir en hin sem varða menntun og velferð. Fulltrúi Vinstri grænna hefði viljað sjá skýrari áherslumun en þann sem hér birtist. Ljóst er að útgjöld á Velferðarsviði þurfa að aukast á árinu 2010 á meðan hægt væri að draga enn frekar saman á sviði framkvæmda eða skipulags. Niðurskurður á kostnað barna eða velferðar mun reynast kostnaðarsamur til framtíðar og er með öllu óásættanlegur.

Sú áætlun sem hér er lögð fram hefur ekki verið unnin af fulltrúum allra flokka. Þó einstaka fundir hafi verið haldnir um áherslur í málaflokknum hefur ekki gefist svigrúm til að ráðið reyni að komast að sameiginlegri niðurstöðu. Án slíks svigrúms er ekki hægt að segja að um samráð hafi verið að ræða auk þess sem starfsáætlun er ekki lögð fyrir í tengslum við fjárhagsáætlun. Fulltrúi Vinstri grænna leggur því fram eftirfarandi tillögur að breytingum á fjárhagsáætlun Velferðarsviðs:

  1. Að fjárhagsaðstoð verði hækkuð að lámarki um 18.000 krónur á mánuði og heimildagreiðslur í hlutfalli við það.
  2. Að hugmyndum um skilyrðingu fjárhagsaðstoðar verði ýtt út af borðinu.
  3. Að fundinn verði staður fyrir þjónustumiðstöð Miðborgar og Hlíða út frá þörfum þeirra sem þangað sækja en ekki farið í vanhugsaða flutninga sem gætu reynst dýrari þegar upp er staðið.
  4. Að fallið verði frá hugmyndum um einkarekstur og útvistun þjónustuþátta þar sem engin ástæða er til að ætla að aðrir en borgin geti rekið þjónustu á hagkvæmari hátt með sama þjónustustigi.
  5. Að endurskoðun samninga verði ekki til þess að skerða nauðsynlega þjónustu sem sjúklingasamtök og önnur félög hafa sinnt í umboði borgarinnar.
  6. Að barnaverndarnefnd hafi möguleika á að sinna auknu álagi og veita börnum borgarinnar þá þjónustu sem lögbundin er.

Þau sjónarmið sem hér koma fram eru ekki tæmandi listi yfir athugasemdir Vinstri grænna við frumvarp að fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar 2010 og áskilja fulltrúar flokksins sér rétt til að koma með breytingartillögur á forgangsröðun velferðarmála á seinni stigum fjárhagsáætlunarvinnunnar.
 
Fulltrúi Vinstri grænna í Velferðarráði sér ekki hagræðinguna af því að útvista þjónustu á vegum borgarinnar enda liggur ekki fyrir hvernig hún hefur áhrif á þá sem þjónustuna þiggur, starfsfólk viðkomandi stofnunar og skattgreiðendur. Engin merki eru um að aðrir geti náð hagræðingu sem borgin getur ekki, án þess að það komi einhvers staðar niður. Ef meirihlutinn treystir sér ekki til að reka stofnanir á sem hagkvæmastan hátt með góðu þjónustustigi og virðingu fyrir starfsfólki ber hann að afsala sér völdum.

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica