Fréttir

Ályktun landsfundar um heilbrigðismál

23.10.2005

Góð lýðheilsa byggir á góðri heilbrigðisþjónustu, jöfnuði í samfélaginu og góðri undirstöðu­menntun þjóðarinnar. Alla þessa grunnþætti ber að styrkja og efla.

 

Það hefur sýnt sig að einkavæðing innan heilbrigðisþjónustunnar eykur misumunun, dregur úr þverfaglegu samstarfi og torveldar félagslegar lausnir.

 

Á undanförnum árum hefur markvisst verið unnið að því af hálfu stjórnvalda að draga úr stoðþjónustu sjúkrahúsanna  með það að markmiði að færa hana ásamt ýmissi sérfærðiþjónustu í einkasrekstur, Þá hafa verið stigin skref til að markaðsvæða heilbrigðis­þjónustuna með aukinni greiðsluþátttöku sjúklinga í lyfjum og þjónustu.

 

VG hafnar einkavæðingarstefnu ríkisstjórnarinnar og mun að alefli beita sér gegn áformum stjórnvalda um frekari einkavæðingu innan heilbrigðisþjónustunnar.  Þvert á móti ber nú að vinda ofan af þessari öfugþróun, snúa vörn í sókn og stórefla heilbrigðisþjónustu á samfélagslegum grunni. Gróðahagsmunum verði úthýst úr heilbrigðiskerfinu.

 

Árangursríkasta  leiðin til að tryggja að heildarútgjöld til heilbrigðismála séu í samræmi við efnahagslegan styrk samfélagsins er að viðhalda heilbrigðisþjónustu sem rekin er og fjármögnuð af hinu opinbera. Einkafjármögnun heilbrigðisþjónustunnar er dýrari fyrir samfélagið og eykur greiðslubyrði þeirra mest sem búa við lökust kjör og þurfa mesta þjónustu.

 

 

VG leggur áherslu á eftirfarandi:

 

  • Heilbrigðisþjónustan verði öllum aðgengileg, óháð búsetu og efnahag.
  • Heilsugæslan verði gjaldfrjáls og hún efld sem grunneining í heilbrigðiskerfinu.  Þar verði boðið uppá fjölþættari þjónustu en nú er veitt, þ.á.m. félagsráðgjöf, sálfræðiþjónustu, iðjuþjálfun og sjúkraþjálfun.
  • Sjúkrahúsin í landinu hafa þurft að búa við óþolandi fjárskort sem bitnað hefur á sjúklingum og starfseminni almennt. Með því að styrkja sjúkrahúsin á landsbyggðinni má  nýta betur fagþekkingu, mannafla og aðstöðu innan heilbrigðiskerfisins. Á þessu er þörf jafnframt því sem staða LHS, sem helsta sjúkrahús landsins og FSA sem gegnir hlutverki hátæknisjúkrahúss verði efld.
  • Stórbæta þarf heimaþjónustu og heimahjúkrun svo langveikir og aldraðir geti búið eins lengi í heimahúsi og vilji þeirra stendur til.
  • Átak verði gert til að útrýma biðlistum eftir heilbrigðisþjónustu og hjálpartækjum.
  • Lögbundinn réttur fatlaðra barna til sérfærðiþjónustu verði virtur.
  • Engar stjórnsýsluákvarðanir verði teknar sem varða hagsmunahópa sjúklinga eða lífeyrisþega án samráðs við fulltrúa þeirra.
  • Sérstakt átak verði gert  til að efla endurhæfingu hvort heldur um er að ræða veikindi, fötlun, starfsendurhæfingu eða til að viðhalda færni til daglegs lífs.
  • Tannlæknaþjónusta barna og unglinga, aldraðra og öryrkja verði greidd úr sjúkratryggingum. Sama gildi um augnskoðun og augnvernd.
  • Forvarnir ásamt fíkni- og vímuefnameðferð verði efldar.
  • Geðheilbrigðisþjónusta verði efld innan heilsugæslunnar og meðferðarúrræðum fjölgað.
  • Nú þegar verði gengið til samninga við sálfræðinga eins og aðra sérfræðinga innan heilbrigðisþjónustunnar 
  • Efla þarf neyðarmótttöku vegna nauðgana sem og fræðslu um kynferðisofbeldi í námi heilsbrigðisstétta.
  • Virða þarf líkamlegt sjáflsforræði kvenna í allri heilbrigðisþjónustu.  

Vinstrihreyfingin ? grænt framboð hafnar kröfum um niðurskurð og einkavæðingu velferðarþjónustunnar.  Þvert á móti er þar nú þörf á stórauknu fjármagni.

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica