Fréttir

Benedikt Davíðsson - minning

20.11.2009

Með Benedikt Davíðssyni er fallinn frá einhver traustasti og eljusamasti forystumaður verkalýðsbaráttunnar undanfarna áratugi. Benedikt átti ekki langt að sækja skilning sinn og samúð með kjarabaráttu launafólks, kominn af vestfirsku alþýðufólki og alinn upp við sjómennsku og fiskvinnslu á Patreksfirði. Hann stóð traustum fótum í lífsbaráttu alþýðufólks á Íslandi. Benedikt sótti sér síðan iðnmenntun til Reykjavíkur og helgaði upp úr því stóran hluta starfsævi sinnar félagsstörfum og kjarabaráttu fyrir sína félaga á því sviði. Hann skipaði sér í raðir sósíalista og tilheyrði róttækustu stjórnamálsamtökum landsins á hverjum tíma upp frá því. Forystustörfum hans fyrir Trésmíðafélag Reykjavíkur, Alþýðusamband Íslands og Samband byggingarmanna verða ugglaust gerð betri skil af þeim sem til þess eru færari en ég. Okkar leiðir lágu fyrst og fremst saman í gegnum stjórnmálastarfið, innan Alþýðubandalagsins og síðan Vinstri grænna.

 

Hugur hans var óbilaður og hugsunin skörp fram til hinstu stundar, þó líkamlegri heilsu hrakaði í lokin. Hann varð að játa sig sigraðan fyrir illvígum sjúkdómi alltof snemma þó hann væri 82 ára að aldri þegar hann lést. Of snemma segi ég, vegna þess að Benedikt var í fullu fjöri sem félagsmálamaður og baráttumaður, maður sem hreif fólk með sér með sinni yfirveguðu skynsemi og sterku réttlætiskennd, hvar sem hann kom, hitti fólk að máli og lagði sitt til umræðunnar.

 

Mér er minnisstætt hversu hrifið unga fólkið var af framgöngu Benedikts þegar verið var að vinna að kynningarmyndbandi fyrir okkur,Vinstri græn, í aðdraganda Alþingiskosninga 2007. Hinn reyndi baráttumaður með sinni skýru sýn á þau gildi sem mestu máli skipta, um jöfnuð og samstöðu, heillaði samstarfsfólkið upp úr skónum.

 

Benedikt átti drjúgan hlut að máli varðandi mótun og uppbyggingu lífeyrissjóðakerfisins og var þar í forustu frá upphafsárunum kring um 1970. Almennt var hann árvökull baráttumaður fyrir því sem laut að réttindum og öllu starfsumhverfi launafólks. Þegar hann dróg sig í hlé frá forystustörfum innan verkalýðshreyfingarinnar tók næsti kafli félagsmálastarfs hans við, en hann gerðist formaður og um tíma starfsmaður Landssambands eldri borgara.

 

Ég kveð Benedikt með söknuð í huga. Það var að því mikill fengur að fá að kynnast honum og starfa með honum. Mér koma í hug orðin ‘traust' og ‘heiðarleiki', þegar ég hugsa til Benedikts. Yfirveguð rósemi, skörp greind og heiðarleg og sanngjörn framkoma í allra garð einkenndu hann, bæði sem persónu og forystumann.

 

Ég þakka honum stuðning sem hann veitti okkar ungu hreyfingu, m.a. með því að taka heiðurssæti á framboðslista Vinstri grænna og leggja okkur lið á fleiri vegu.

Það var gott að eiga hann að og fáum hef ég kynnst ráðhollari þegar til var leitað.

 

Blessuð sé minning Benedikts Davíðssonar. Ég votta eftirlifandi eiginkonu hans, börnum og fjölskyldu allri samúð mína.

 

Steingrímur J. Sigfússon

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica