VGR vill að breytingar á kosningalögum fari fyrir stjórnlagaþing
Félagsfundur Vinstri grænna í Reykjavík haldinn 12. nóvember 2009 telur best fara á því ef stjórnlagaþingi yrði falið að móta tillögur um ný kosningalög sem tekið gætu gildi fyrir næstu Alþingiskosningar. Mikil þörf er á rækilegri endurskoðun kosningalaga, en fundurinn getur ekki fallist á frumvarp sem kemur í veg fyrir að flokkar geti tryggt jafnræði frambjóðenda með tilliti til kyns, aldurs og aðgangs að fjármagni. Jafn viðamikla breytingar og verið er að ræða nú um mundir verða að vera vandlega ígrundaðar og unnar í sátt við kjósendur.

