Stjórnarformaður OR fer með rangt mál
Yfirlýsing frá Þorleifi Gunnlaugssyni, fulltrúa VG í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur vegna ummæla Guðlaugs Sverrissonar stjórnarformanns Orkuveitunnar um að Orkuveitan sjái fram á hundruð milljóna króna kostnaðarauka vegna tafa á Helguvíkurverkefninu, óvissu um Suðvesturlínur og orkuskatta sem valdi því að Orkuveitan geti ekki staðfest pöntun á Mitzubishi-aflvélum frá Japan og reyni nú að mæta tafakostnaði með hærra orkuverði frá Norðuráli.
Með ummælum sínum er stjórnarformaðurinn að draga fram upplýsingar um samningaviðræður við Norðurál sem ræddar voru á stjórnarfundi á föstudaginn, þar sem beðið var um trúnað. Fullyrðingar stjórnarformannsins og fréttaflutningur Stöðvar 2, tengdar þeim eru algerlega úr lausu lofti gripnar og eru hér færð rök fyrir því:
-
Evrópski fjárfestingarbankinn var búinn að lofa láni til OR í september í fyrra.
-
Hrunið í október stoppaði þá fyrirgreiðslu og lánið dróst en menn voru vongóðir um að það kæmi í sumar.
-
Um miðjan júlí kom síðan tilkynning frá bankanum um það að bankinn treysti sér ekki til að lána Orkuveitunni.
-
Síðan þá hafa staðið yfir samningaviðræður sem fjármálaráðherra hefur komið að og það er ekki síst fyrir hans tilstilli að líklegt er að lánið sé á leiðinni.
-
OR hafði pantað 5 túrbínur en eftir hrunið var samið við Mitzubishi um það að fresta afhendingu þriggja þeirra í eitt ár. Vegna þessa varð OR að greiða tafabætur að upphæð einum milljarði króna en hver túrbína kostar um 5 milljarða.
-
Jafnvel þó að Orkuveitan fái lánið frá Evrópska fjárfestingarbankanum á eftir að fjármagna seinni helming Hverahlíðarvirkjunar og fullkomin óvissa er um það hvort það takist. Fáist ekki aukið fjármagn verður ekki farið í Hverahlíðarvirkjun að sinni.
-
Af þessum sökum er umræða um það í stjórn OR að framlengja frestun á móttöku túrbínanna þriggja eða hætta við kaupin og er von á fulltrúum frá við Mitzubishi hingað til lands til að ræða þau mál.
-
Viðræður Orkuveitunnar vegna álvers í Helguvík snúast um orkuverð. OR hafði gert fyrirvara um arðsemi virkjananna og nýjustu útreikningar benda til þess að hækka þurfi verðið. Fyrir því eru ýmsar ástæður svo sem hærra verð á innfluttu efni en frágangur og auknar mengunarvarnir vega þar þungt.
-
Það er ekki búið að fjármagna álver við Helguvík. Norðurál taldi sig vera búið að semja um fjármögnun við Íslandsbanka, Glitni og Kaupþing fyrir hrun. Nú er verið að leita fjármögnunar frá erlendum bönkum en heimskreppan virðist setja þar strik í reikninginn. Þannig er bæði óvissa um álverið og orkuna í það
-
Enginn ofantaldra þátta tengjast ákvörðun um Suðvestur línur, hvað þá meintum orkusköttum. Allt tal þar um er úr lausu lofti gripið og virðist stjórnast af annarlegum tilgangi stjórnarformannsins sem sagður er hafa mikinn áhuga á því að verða ofarlega á lista Framsóknarflokksins til næstu borgarstjórnarkosninga en gengið verður frá listunum í lok mánaðarins.

