Fréttir

Góður fundur í Vestmannaeyjum

29.10.2009

atli-toppur
atli-toppur

 

Atli Gíslason þingmaður og svæðisfélag Vinstri- grænna í Vestmannaeyjum stóðu fyrir opnum almennum fundi í Vestmannaeyjum  í gærkvöldi ( miðvikudag). Fundurinn var vel sóttur, málefnalegur og afar gagnlegur. Landsmálin almennt voru trædd, farið yfir þróun stjórnmála á Íslandi frá því fyrir efnahagshruðið á síðasta ári og hvað síðan hefur gerst. Aðgerðir ríkisstjórnarinnar og Alþingis voru ræddar hugað að framtíðarhorfum þjóðarinnar eftir þau gjörningaveður sem hún hefur og er að ganga í gegn um.  Þá voru tekin til umræðu þau mál sem helst brenna á Vestmannaeyingum og öðru landsbyggðarfólki nú um þessar mundir.

Fundarmenn voru sammála um að niðurskurður  í kjölfar  kreppunnar mætti ekki bitna á grunnstoðum samfélagsins og fækkun starfa eða samdráttur í ýmissi opinberri þjónustu væri landsbyggðinni andsnúin og mjög vanhugsuð. Þess vegna þyrfti að standa vörð um ýmis opinber þjónustustörf á landsbyggðinni og frekar að fjölga þeim þar með nýjum verkefnum sem styrkt gætu byggðir landsins og íslenskt samfélag í heild.

Sjávarútvegsmál voru krufin og í umræðunni kom fram að mikilvægast væri að tryggja sjávarútvegsstefnu þar auðlindinni væri réttlátlega skipt og öryggi byggða landsins væri í fyrirrúmi.  Þá var og farið rækilega yfir hve brýn nauðsyn væri á að sætta mismunandi sjónarmið vegna framtíðar sjávarútvegsins og væru þær sættir undirstaða þess að auðlindin gæti nýst landsmönnum með sem réttlátustum hætti og skynsamlegustum afrakstri.

Samgöngumál og öryggi í þeim voru rædd og farið yfir þá miklu möguleika sem opnast þegar ný höfn í Landeyjasandi verður tilbúin næsta sumar. Sé rétt á málum haldið getur nýja höfnin skapað ótal tækifæri á fjölmörgum sviðum, ekki síst í ferðamennsku. 

Ræddir voru sérstaklega þeir möguleikar sem skapast fyrir aukna þjónustu Heilbrigðisstofnunarinnar  í Vestmannaeyjum með bættum samgöngum, með  því að taka við sjúklingum ofan af landi og styrkja um leið stoðir heilbrigðisþjónustunnar hér í Eyjum.

Fjölmörg önnur mál voru rædd og þar á meðal framtíðarhugmyndir um orkunýtingu til hagbóta fyrir almenning í stað þess að hugsa einungis um stóriðju sem einhverja patentlausn í öllum framtíðaráformum.

Sem fyrr segir var fundurinn góður og málefnalegur og sýnir að mörg úrlausnarefni eru framundan og full ástæða er til bjartsýni inn í framtíðina.

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica