Sveitastjórnarfólk undirbýr kosningar
Sveitastjórnarráð Vinstri grænna stóð fyrir fjölmennri ráðstefnu í Fjölbrautaskóla Akraness um helgina þar sem fólk kom sér í stuð fyrir komandi vetur og kosningabaráttu. Margir hópar voru starfandi sem fjalla um sveitastjórnarmál frá öllum hliðum, þjónustu, fjármál, skipulag og svo framvegis. Auk þess var starfandi hópur um kosningabaráttuna og upplegg hennar. Ein ályktun var samþykkt á fundinum og er hún svohljóðandi:
Fundur Sveitastjórnarráðs Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs haldinn á Akranesi 16. október 2009, telur áríðandi að heimildir sveitarfélaga til aukinnar tekjuöflunar verði rýmkaðar.

