Fréttir

Borgarstjórn hafni samningi um sölu HS orku

8.9.2009

Eftirfarandi ályktun var samþykkt á Félagsfundi VGR um Orkumál sem haldinn var mánudaginn 7. september kl. 20.00 að Vesturgötu 7, Reykjavík:

Félagsfundur Vinstri grænna í Reykjavík fordæmir fyrirætlanir meirihluta borgarstjórnar um að selja hlut Orkuveitu Reykjavíkur í HS Orku. Það er eindregin skoðun fundarins eins og þorra þjóðarinnar að orkufyrirtæki eigi að vera í almannaeigu. Nú þegar þjóðin stendur frammi fyrir tímabundnum erfiðleikum er mikilvægara en nokkru sinni fyrr að standa vörð um auðlindir okkar og nýtingu þeirra til framtíðar. Sala orkufyrirtækja til einkaaðila undir þessum kringumstæðum er glapræði.

Fundurinn skorar á borgarstjórn Reykjavíkur að hafna samningi Magma Energy Sweden við Orkuveitu Reykjavíkur og sinna þannig þeirri frumskyldu sinni að gæta hagsmuna almennings til langs tíma og standa vörð um samfélagsleg verðmæti.

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica