Fréttir
Ályktun um Náttúruminjasafn Íslands
Landsfundur Vinstrhreyfingarinnar ? græns framboðs ályktar að mikilvægt sé að hraða áformum um byggingu Náttúruminjasafns. Samkvæmt safnalögum frá 2001 á Náttúruminjasafn Íslands að vera höfuðsafn á sviði náttúrufræða og eitt af þremur höfuðsöfnum landsins ásamt Listasafni Íslands og Þjóðminjasafninu. Saga Náttúruminjasafns Íslands spannar 116 ár. Safnið var upphaflega sett á laggirnar árið 1889 af Hinu íslenska náttúrufræðifélagi og ætti með réttu að skipa öndvegi meðal íslenskra safna. Landsfundur Vinstri grænna skorar á stjórnvöld að efna hið fyrsta margítrekuð fyrirheit um lausn á húsnæðisvanda safnsins.Landið og þjóðin eiga skilið glæsilegt og vel búið Náttúruminjasafn.

