Fréttir

Danir ræða skyldur Íslands í Kristjánsborg

24.8.2009

Þingkona Enhedslisten, í Danmörku, Line Barfod hefur lagt fram fyrirspurn á þinginu um hvort forsætisráðherra Danmerkur telji að Ísland eigi að fá stuðning  frá alþjóðasamfélaginu til að komast  í gegnum kreppuna án þess að velferðarsamfélaginu sé stefnt í voða?

Tilefnið eru Icesave-samningarnir og staða Íslands meðal þjóðanna. Ráðherrann er spurður hvort  hann sé sammála því að skilyrðin fyrir fjárhagsaðstoð í hinni þeirri djúpu kreppu sem Ísland gangi nú í gegnum, megi ekki vera svo hörð að Ísland sé þvingað til niðurskurðar í ríkisútgjöldum sem ógni velferðarkerfinu og dæmi landsmenn til fátæktar.  Einnig er spurt hvort danska forsætisráðherranum þyki eðlilegt að íslenska ríkið sé knúið til að bera fulla ábyrgð á hverjum einasta einstaklingi sem hafi ætlað sér að hagnast á því að skipta við íslenskar lánastofnanir.

Ætlar Danmörk nú þegar og án frekari tafar að opna fyrir neyðarlán til Íslands?

Og loks er utanríkisráðherrann beðinn um að gera grein fyrir þeim fyrirvörum sem  Alþingi Íslendinga gerir við Icesave samningana og hann er einnig beðinn um að skýra afstöðu danskra stjórnvalda til fyrirvaranna. Vænta má að dönsk stjórnvöld bíði með svarið þar til endalega er ljóst hvernig Alþingi afgreiðir Icesave-samningana.

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica