Fréttir

Ályktun gegn samræmdum stúdentsprófum

31.10.2005

Vinstrihreyfingin - grænt framboð leggst gegn samræmdum stúdentsprófum í framhaldsskólum. Eins og orðalagið gefur til kynna gera samræmd próf námið í framhaldsskólunum einsleitara auk þess sem aðeins er prófað í fáum greinum sem fá þá aukið vægi á kostnað annarra.

Þetta mun njörva skólana niður í sama far og reynslan sýnir að brátt gæti kennslan farið að snúast um prófin en ekki öfugt. Vinstri græn krefjast þess að horfið verði af braut miðstýringar og samræmingaráráttu sem einkennt hefur menntastefnu núverandi ríkisstjórnar.

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica