Fréttir

Áskorun til þingmanna VG og bréf til Steingríms

15.7.2009

Sérstaklega hefur verið óskað eftir því birt sé á heimasíðu flokksins eftirfarandi áskorun til þingmanna VG og bréf til Steingríms J. Sigfússonar, formanns flokksins. Áskorunin og bréfið eru svohljóðandi:

 

Áskorun

til þingmanna Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs

um að hafna tillögu til þingsályktunar um aðildarumsókn að Evrópusambandinu

                                             

Nú þegar líður að atkvæðagreiðslu um aðildarumsókn að Evrópusambandinu virðist sem meirihluti þingmanna vinstri grænna ætli að taka þátt í því að sækja um aðild að ESB þrátt fyrir að flestir þeirra séu sambandinu andsnúnir. Þykir okkur það mjög miður og eigum erfitt með að trúa að það sé í raun og veru sú leið sem þeir vilja fara. Finnst okkur líklegra að vegið sé að frelsi þingmanna VG og hér sé á ferðinni krafa af hálfu samstarfsflokksins og jafnvel hótun um stjórnarslit. Slík staða er algjörlega óviðunandi.

                           

Í þessu máli er það okkar tilfinning að flokksforustan sé að fjarlægjast grasrótina og þá skýru og rótgrónu stefnu sem VG hefur staðið fyrir frá upphafi. Svæðisfélög víðs vegar um landið hafa ályktað um ESB aðildarumsókn og hvatt þingmenn til að fara að landfundarsamþykkt og fella þessa tillögu á Alþingi. Við hljótum að gera þá kröfu til þingmanna okkar að þeir hlusti á raddir grasrótarinnar og virði þær.

 

Með þessu bréfi viljum við gera úrslitatilraun til að hvetja þingmenn til þess að fylgja sannfæringu sinni þegar þeir greiða atkvæði um hvort Ísland eigi að sækja um aðild að ESB.  Þeir hljóta að spyrja sjálfa sig í einlægni hvort það sé þeirra einbeittur vilji að styðja þetta mál. Þá skorum við á þingmenn að styðja breytingartillögu minnihlutans um tvöfalda þjóðaratkvæðagreiðslu, enda er sú leið líklegust til að sætta almenna flokksmenn og kjósendur í þessu máli.

 

Anna Berg Samúelsdóttir

Anna Ólafsdóttir Björnsson
Ársæll Guðmundsson

Ása Björk Ólafsdóttir
Ásmundur Páll Hjaltason
Ásmundur Þórarinsson
Birna Þórðardóttir
Brynja Halldórsdóttir
Brynjúlfur Steinar Guðbrandsson

Einar Ólafsson
Eva Sigurbjörnsdóttir
Freyr Rögnvaldsson

Garðar Mýrdal
Guðbjörg Sveinsdóttir

Guðbrandur Brynjúlfsson

Guðrún Axfjörð Elínardóttir

Guðrún Hallgrímsdóttir
Gunnar Guttormsson
Gunnhildur Harðardóttir

Hrafn Heimisson
Hugrún Guðmundsdóttir
Ingibjörg Jónasdóttir

Jóhanna Aradóttir
Karólína Einarsdóttir

Kjartan H. Ágústsson

Kristín Halldórsdóttir
Margrét Pétursdóttir

Már Ólafsson
Rafn Gíslason

Ragnar Arnalds
Ragnar Stefánsson
Rúnar Sveinbjörnsson
Sigurlaug Gröndal

Sigþrúður Jónsdóttir
Snjólaug Guðmundsdóttir

Þorsteinn Bergsson
Þorsteinn Ólafsson
Þórarinn Magnússon
Þórunn Reykdal

 

 

 

Opið bréf til Steingrím J. Sigfússonar

 

Það er ekki af ánægjulegu tilefni að ég skrifa þér þetta bréf Steingrímur. Nú lýtur út fyrir að þú og nokkrir þingmenn Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs ætli að greiða götu aðildarumsóknar Ísland að Evrópusambandinu. Fyrir þessu ætlar þú að standa þrátt fyrir að alla tíð og einnig í aðdraganda síðustu kosninga hafir þú alfarið hafnað inngöngu Íslands í sambandið og farir fyrir stjórnmálaflokki sem segir í stefnuskrá sinni orðrétt "Hugsanlegur ávinningur af aðild Íslands að Evrópursambandinu réttlætir ekki frekara framsal á ákvörðunarrétti um málefni íslensku þjóðarinnar og er aðild að Evrópusambandinu því hafnað". Ef að Vinstri hreyfingin grænt framboð stendur að aðildarumsókn að Evrópusambandinu er flokkurinn að segja að það sé ásættanlegt að Ísland gangi í Evrópusambandið að ákveðnum skilyrðum uppfylltum og ganga þar með gegn eigin stefnu þar sem inngöngu í sambandið er með öllu hafnað.

 Hvernig má það vera að eftir á allt sem undan er gengið og skýra stefnu flokksins í þessum málaflokki ætlir þú Stengrímur J. Sigfússon að styðja frumvarp um aðildarumsókn Ísland að Evrópusambandinu. Ef ekki hafa orðið sinnaskipti hjá þér þá hlýtur að vera ætlan þín að flækjast fyrir málinu á öðrum stigum málsins. Ef svo er ert þú farinn að stunda þau klækjastjórnmál sem að mínu viti var verið að berjast gegn í búsáhaldarbyltingunni og Vinstrihreyfingin grænt framboð hefur svo oft fordæmt.

Með því að segja já við frumvarpi ríkisstjórnarinnar um aðildarumsókn að Evrópusambandinu þá gerir þú þig að ómerkingi orða þinna en það sem verra er þá gerir þú mig og alla þá sem börðust fyrir flokkinn í aðrdraganda síðustu kosninga að ómerkingum orða sinna. Sjálfur fékk ég 50 manns til þess að skrá sig í flokkinn fyrir síðustu kosningar og það var klárt í mínum huga og í orðræðum mínum við það fólk að aldrei myndi flokkurinn taka þátt í því að færa Ísland nær Evrópusambandinu.

Nú hlakkar í andstæðingum Vinstir grænna og segja ágrenning innan hreyfingarinnar til marks um sundrungu vinstri manna. Ég segji ágreninginn til marks um staðfestu og trú fólks á skoðanir sínar og að vinstri menn láti ekki afvegaleiða sig þótt fáeinir forystu menn misstygi sig. Mín hollusta lítur ekki að ákveðnum foringja eða stjórnmálamönnum heldur lýtur mín hollusta að Íslandi og engu öðru.

Ég hef rætt við marga innan hreyfingarinnar og ekki enn fundið neinn sem er sammála þeirri leið sem þú og meiri hluti þingmanna okkar ætlar að fara. Hér að neðan skrifa einnig undir bréfið nokkrir af félögum okkar úr norðaustur- kjördæmi til þess að þú vonandi skynjir hug félaga þinna og kjósenda sem á engan hátt skildu þig á þann veg í aðdraganda kosninganna að þú myndir segja já við aðildar umsókn Íslands að Evrópusambandinu. Þú varst ekki kosinn á Alþingi Íslendinga af kjósendum Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs til þess að samþykkja þesslags frumvarp.

 

Kveðja

Guðbergur Egill Eyjólfsson   Flokksbundinn Vinstri grænn

 

Þeir sem lýsa yfir stuðningi við bréfið og innihald þess eru eftirfarandi

Þorsteinn Bergsson                5. sæti á lista VG í norðaustur kjördæmi

Ingunn Kristjana Snædal       8. sæti á lista VG í norðaustur kjördæmi

Ásmundur Páll Hjaltason       9. sæti á lista VG í norðaustur kjördæmi

Ásta Svavarsdóttir                 10. sæti á lista VG í norðaustur kjördæmi

Hrafnkell Lárusson                13. sæti á lista VG í norðaustur kjördæmi

Björgvin R. Leifsson              Kjördæmisráði norðaustur kjördæmis VG

Guðsteinn Hallgrímsson         Stjórn svæðisfélags VG í Seyðisfirði, Borgarfirði eystri og Héraði

Ásmundur Þórarinsson           Stjórn svæðisfélags VG í Seyðisfirði, Borgarfirði eystri og Héraði

Baldvin H. Sigurðsson           Bæjarfulltrúi VG á Akureyri

Ólafur Þ. Jónsson                   Skipasmiður

 

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica