Hagsmunir Kópavogsbúa virtir að vettugi
Stjórn VG í Kópavogi hefur sent frá sér svohljóðandi ályktun:
Stjórn VG í Kópavogi fordæmir áframhaldandi samstarf Sjálfstæðis- og Framsóknarfólks í Kópavogi og telur það sýna vilja til að viðhalda þeirri spillingu og eiginhagsmunapoti sem hefur fengið að viðgangast í bæjarpólitíkinni undanfarin ár og að hagsmunir bæjarbúa séu virtir að vettugi. Þá undrast stjórnin að meirihlutinn ætli að sitja áfram þrátt fyrir skýrar kröfur um breytingar innan beggja flokka. Vegna Lífeyrissjóðsmálsins(LSK) telur stjórn VG í Kópavogi réttast að allir þeir kjörnu fulltrúar er sátu í fráfarandi stjórn Lífeyrissjóðs Kópavogs víki úr sæti sínu í bæjarstjórn á meðan lögreglurannsókn fer fram.

