Fréttir

Til hamingju með daginn!

6.2.2007

  Góðir félagar, stuðningsmenn og velunnarar Vinstrihreyfingarinnar ? græns framboðs; til hamingju með daginn. Já, það eru átta ár síðan upp á dag að við stofnuðum flokkinn okkar og ekki annað hægt að segja en afmælisbarninu heilsist vel. Við skulum samt halda okkur á jörðinni og muna að skoðanakannanir eru ekki sama og kosningar og þrír mánuðir, sem enn lifa til kjördags, eru langur tími í pólitík.

 

  Við vorum ekkert óskaplega mörg, og með tvær hendur tómar hvað varðar flokksskipulag, húsnæði og þvíumlíkt, sem lögðum upp í leiðangurinn. Þetta er óhætt að viðurkenna í dag. En við áttum  það sem hverjum ferðalangi er ómissandi, trúna á okkur sjálf og okkar málstað og viljann til að leggja allt undir og fram krafta okkar óskipta þannig að við kæmumst í áfangastað. Síðan hefur jafnt og þétt fjölgað í hópnum og lætur nærri, sýnist mér, að fjöldi félaga hafi fimmfaldast frá stofnun flokksins. Gríðarlega kraftmikil og breið sveit ber nú fram okkar málstað bæði í sveitarstjórnum og á landsvísu og fleiri tala máli okkar úti í samfélaginu en nokkru sinni fyrr.

 

  Í febrúar 1999 stóðu kosningar fyrir dyrum rétt eins og nú. Þá var nú aldeilis ekki á vísan að róa með það hvort við Vinstri græn myndum yfir höfuð fá kjörna þingmenn, hvað þá sex eins og raunin varð. Ég mun aldrei gleyma því einstaka andrúmslofti sem þá skapaðist í okkar röðum og hvernig það smátt og smátt smitaði út frá sér og hreif fleiri og fleiri með. Baráttuvilji, fórnfýsi og dugnaður fólks var með ólíkindum. Mín ósk til okkar nú á afmælisdaginn er sú að við náum að varðveita áfram og taka með okkur inn í framtíðina þennan góða anda og samstöðu- og baráttuvilja sem okkur hefur svo giftusamlega tekist að varðveita til þessa dags. Þrennt er flokkum dýrmætast, mannauður, málstaður og samstaða og ef félagar reynast vanda sínum vaxnir í sókn og vörn hinnar daglegu og áralöngu baráttu þá eignast þeir það fjórða sem er góður orðstír. Gætum vel að þessu öllu og þá mun björt framtíð brosa við afmælisbarninu um ókomin ár.

 

Steingrímur J. Sigfússon   

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica