Fréttir

Upplýsingar um Icesave-samkomulagið

18.6.2009

Mikið hefur verið rætt og skrifað um Icesave-samningana svokölluðu að undanförnu. Eins og kunnugt er tók núverandi ríkisstjórn við málinu frá fyrri ríkisstjórn í afar þröngri stöðu. Þá hafði þegar verið komist að samkomulagi á mun óhagstæðari kjörum en nú hefur tekist að semja um. Meginábyrgðin á Icesave-málinu liggur að sjálfsögðu hjá þeim stjórnvöldum sem leyfðu Icesave-reikningana að safnast upp á ábyrgð íslenska innlánstryggingakerfisins án þess að aðhafast nokkuð í málinu þrátt fyrir mörg hættumerki. Ríkisstjórnin sem nú situr, með aðild Vinstri grænna, fékk það erfiða verkefni að leysa úr vandanum og lágmarka skaðann sem af málinu hlýst.

Til upplýsingar er rétt að benda á „Spurningar og svör vegna Icesave samningsins“ af upplýsingasíðu stjórnvalda, island.is.

Einnig má benda á vefrit Fjármálaráðuneytisins og fréttaskýringu Smugunnar um málið.

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica