Dregið í happdrætti VG
Dregið hefur verið í happdrætti Vinstri grænna. Ef þú ert svo heppin/n að hafa fengið hafðu þá samband við skrifstofu VG í síma 552 8872 eða á netfangi vg@vg.is. Vinningsnúmerin eru þessi:
268 Hreiðrar sig blikinn …: Heimsókn í æðarvarp í Litlum Brákey við Borgarnes með Finni Torfa Hjörleifssyni. Nýveiddur silungur með smjöri í lokin. Fyrir sex.
360 Tvær stjörnur á blárri festingunni …: Kíkt á himinhvolfið, norðurljósanna dans og stjörnufans undir leiðsögn Sverris Guðmundssonar. kvöldhressing. Fyrir átta.
484 Sísí fríkar út …: Andrea Jónsdóttir rokkar liðið upp úr skónum í veislunni, partýinu, inni sem úti.
648 Að blóta Frey og fornar dyggðir …: Gist á hótelinu í Flatey. Bátsferð og kvöldverður í boði Álfheiðar Ingadóttur. Fyrir fjölskyldu.
938 Vituð ér enn eða …: Bragi Kristjónsson lekur leyndarmálum í allt að sex manns.
1065 Stolt siglir fleyið …: Bátsferð með Steinunni Þóru Árnadóttur og föður frá Neskaupstað á vit Viðfjarðarskottu. Nesti í Hellisfirði. Fyrir fjóra.
1090 Hús andanna …: Birna Þórðardóttir býður í skoðunarferð um hús sitt. Portkonupasta og vín hússins. Fyrir sex.
1296 Dagleið á fjöllum …: Stefán Rögnvaldsson býður í óvissuferð, hlaðinni andlegu sem veraldlegu fóðri. Hangikjötsveisla í lokin að þingeyskum bændasið á Leifsstöðum. Fyrir fjóra.
1529 Af hlaðborði sögunnar …: Gestir eta sig og feta gegnum síðustu öld undir leiðsögn Heimis Janusarsonar og Sólveigar Ólafsdóttur. Fyrir sex.
1822 Hellisbúinn heimsóttur …: Kristín Benediktsdóttir leiðsögumaður ratar í hulda hella við Kaldá. Varmar veitingar í göngulok. Fyrir sex.
1970 Á grillsins Grímstaðarholti – er angan engu lík …: Ögmundur Jónasson sýnir rómaða listatakta í garðinum. Grillveisla fyrir átta.
2271 Hver á sér fegra föðurland …: Dulúð Svarfaðardals könnuð með Ragnari Stefánssyni og Ingibjörgu Hjartardóttur. Gisting og kvöldverður að höfðingjahætti. Fyrir fjóra.
2385 Spáð í spilin …: Þórunn Elísabet Sveinsdóttir búningahönnuður les tarot spilin fyrir tvo. Unaðste fylgir með.
2410 Berserkjagata gengin …: Slóðir Eyrbyggju þræddar með Jóni Bjarnasyni. Boðið upp á nægtarborð að hætti hlunnindabænda. Fyrir fimm.
2729 Tunglið, tunglið, taktu mig….: Bergt á sagnabrunni Ármanns Jakobssonar um Vonarstræti 12, þar sem frelsisandi og baráttuvilji svífa enn yfir vötnum. Vonardrykkur. Fyrir sex.
2919 Rauðir dagar og grænir …: Kvöldvaka eða dags- með Einari Má Guðmundssyni sagnameistara.
3327 Eldrauður vegur í alfaraleið …: Og við ferðalok býður Atli Gíslason til golfæfinga og grillveislu í Grímsnesinu. Fyrir fimm.
3345 Vanda skal til veislu hverrar …: Kolbrún Halldórsdóttir leiðir gesti á vit gleðinnar, með ljóði, tækifærisræðu og veislustjórn, eftir óskum.
3472 Sitja sex að tafli, engin refskák þó …: Skáklist, sönglist og matarlist ráða ríkjum á gleðistund með Guðfríði Lilju Grétarsdóttur. Fyrir fjóra.
3540 Úr viðjum vanans – á vit norðursins …: Allt að vikudvöl fyrir fjölskyldu í gestahúsi á Gunnarsstöðum. Hestar og trilla til afnota. Í boði Steingríms J. Sigfússonar og ábúenda.
3992 Siðfræði hagfræðinnar í stað hagfræði eymdarinnar …: Lilja Mósesdóttir skýrir ýmis grunnhugtök. Siðbótarhressing í lokin. Fyrir sex.
4548 Hann gerir garðinn frægan …: Auðn og grjót umbreytast í unaðsreit. Ingi Rafn Hauksson gefur ráðin fyrir garðinn.
4598 Bláfjólu má í birkiskógum líta …: Hallormsstaðaskógur – Atlavík. Þuríður Backman leiðir gesti um austfirska paradís og býður til panfílskrar veislum. Fyrir fjóra.

