Fréttir

Ályktun stjórnar VG í Hafnarfirði

4.11.2005

Stjórn VG í Hafnarfirði samþykkti eftirfarandi ályktun á fundi sínum 1.11.2005.

 

Stjórn VG í Hafnarfirði telur það með öllu óásættanlegur aðbúnaður sem öldruðum er búinn  á Sólvangi í Hafnarfirði.

 

Þetta ástand hefur verið þekkt í mörg ár án þess að brugðist sé við því með réttum hætti. Það er með öllu óþolandi að öldruðum einstaklingum sem hafa lokið sínu ævistarfi sé boðið upp á þær aðstæður sem viðgangast á Sólvangi. Heilbrigðisráðuneytið dregur lappirnar og er sífellt að fresta framkvæmdum við viðbótarbyggingu sem mundi leysa brýnasta vanda. Einnig er átalið að bæjarstjórn Hafnarfjarðar hafi ekki náð árangri í þessu máli og sett í forgang lausn á því. 

 

Stjórn VG í Hafnarfirði skorar á heilbrigðisráðherra og bæjarstjórn í Hafnarfirði að ganga nú þegar í að leysa þetta mál svo sómi sé að.

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica