Fréttir

Ályktun landsfundar um trúfrelsi og rétt til trúleysis

8.11.2005

Landsfundur VG haldinn í Reykjavík 21.-23. október 2005 ályktar að fullt trúfrelsi og jöfn staða trúar- og lífsskoðunarfélaga sé grundvallaratriði. Öll löggjöf og stjórnsýsla þarf að miðast við það. Eðlilegt er að taka mið af því að kristin trú er samofin menningu og sögu þjóðarinnar sem einnig enduspeglast í íslenskri löggjöf. En einnig verður að líta til þess að Ísland þróast óðfluga í þá átt að vera fjölmenningarlegt samfélag þar sem önnur trúarbrögð skipa sinn sess. Auk þess kýs stór hópur fólks að aðhyllast engin trúarbrögð. Fundurinn leggur áherslu á að réttur einstaklinga og hópa sem tilheyra öðrum  trúarbrögðum en kristni eða aðhyllast engin trúarbrögð sé ekki fyrir borð borinn og er þá meðal annars mikilvægt að í skólum sé gætt fyllsta hlutleysis gagnvart trúarbrögðum og afstöðu til trúar. Landsfundur VG telur að afnám stjórnarskrárákvæðis um samband ríkis og kirkju hljóti að koma til skoðunar fyrr eða síðar og hvetur til að því verði hraðað en þó þannig að um það verði sem mest sátt.

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica