Fréttir
Ályktun um áform Landsvirkjunar um samkeppni í grunnskólum
Landsfundur Vinstrhreyfingarinnar ? græns framboðs mótmælir harðlega þeim áformum Landsvirkjunar að efna til samkeppni í grunnskólum landsins um orkumál og Kárahnjúkavirkjun. Landsfundurinn telur forkastanlegt að Landsvirkjun skuli með þessum hætti ætla að þröngva áróðri sínum og innrætingu inn í störf grunnskólanna og reyna að fá börn til fylgis við hrikalegustu náttúruspjöll og umdeildustu framkvæmdir Íslandssögunnar.
Landsfundurinn hvetur skólastjórnendur, kennara, nemendur og foreldra þeirra til að hafna afdráttarlaust þáttöku i þessari samkeppni Landsvirkjunar.

