Fréttir
Á fjórða þúsund manns í kosningakaffi
Á sjöunda tímanum höfðu á fjórða þúsund manns komið í kosningakaffi hjá Vinstri grænum í Reykjavík. Minnugir félagar telja að um sé að ræða fjölmennasta kosningakaffi VG frá upphafi! Ljóst er að það stefnir í spennandi kosninganótt, en kosningavakan í Reykjavík hefst kl. 21 á Kaffi Reykjavík.

