Gríðarlega góður fundur á Ísafirði
Rífandi stemming var á fundinum með Steingrími og Lilju Rafney á Ísafirði í gærkvöldi. 150 manns sóttu fundinn. Allir stólar í tvöföldum sal hótelsins fylltust svo sækja þurfti stóla á kosningamiðstöðina, en dugði ekki til svo sumir þurftu að standa. Eftir framsögur Lilju og Steingríms voru fjölmargar fyrirspurnir og stóð fundurinn í tvo og hálfan tíma. Það var mál fundargesta að fundurinn hafi verið mjög málefnalegur. Fjölmargir skráðu sig í flokkinn eftir fundinn.


