Fréttir

Ályktun um fyrirhugaða einkavæðingu Landsvirkjunar

9.11.2005

Raforkuframleiðsla fyrir almennan markað á áfram að vera samfélagslegt verkefni. Vatnsaflið og jarðhitinn eru auðlindir sem eiga áfram að vera í sameign þjóðarinnar og nýting þeirra á höndum sveitarfélaga og ríkisins. Aðeins þannig er hægt að tryggja jöfnuð í verðlagningu á þessari grunnþjónustu í nútíma samfélagi. Aðeins þannig er hægt að tryggja að nýting auðlindanna verði sjálfbær og byggist á virðingu fyrir náttúrunni.  

 

Alls staðar þar sem raforkufyrirtæki hafa verið einkavædd hefur raforkuverð til heimila snarhækkað um leið og öryggi í raforkuafhendingu hefur snarminnkað. Þetta hefur gerst bæði austan hafs og vestan. Hætt er við að slíkt myndi einnig gerast hér í kjölfar einkavæðingar, þegar menn fara að reka raforkuiðnaðinn með hagnaðarvonina eina að leiðarljósi.

 

Ályktun landsfundar Sjálfstæðisflokksins um einkavæðingu orkufyrirtækja og Landsvirkjunar sérstaklega sýnir svo ekki verður um villst að það þjónar hvorki  hagsmunum Reykvíkinga, Akureyringa né annarra landsmanna að þessi sveitarfélög selji ríkinu nú eignarhlut sinn í Landsvirkjun, eins og komið hefur til álita. Í ljósi áforma ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og Framsóknar leggst Vinstrihreyfingin ? grænt framboð gegn því að Reykjavíkurborg og Akureyri selji nú hlut sinn í Landsvirkjun.

 

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica