Sjálfstæðismenn koma í veg fyrir að valdið farið til þjóðarinnar
Eftir margra vikna þrautseiga baráttu hefur Sjálfstæðismönnum tekist að koma í veg fyrir að náttúruauðlindir séu sameign okkar allra, að almenningur geti krafist þjóðaratkvæðagreiðslu um mál sem varða almannahag og að stjórnarskráin verði endurskoðuð á stjórnlagaþingi.
Nefnd hefur verið að störfum á Alþingi til að reyna að ná málamiðlun en með tillöguflutningi eins og hann var kynntur í nefndinni staðfestir minni hluti Sjálfstæðisflokksins í fyrsta lagi andstöðu sína við að náttúruauðlindir séu í þjóðareign og verði ekki látnar varanlega af hendi og setur í öðru lagi fótinn fyrir tillögur sem auðvelda breytingar á stjórnarskrá. Í þriðja lagi gerir minni hlutinn ekki ráð fyrir því að almenningur geti krafist þjóðaratkvæðagreiðslu um mál er varða almannahag og í fjórða lagi, eins og fram hefur komið, hafnar minni hlutinn því að almenningur geti valið fulltrúa sína á stjórnlagaþing til að endurskoða stjórnarskrána. Með tillögunum hefur minni hluti Sjálfstæðisflokksins í raun slegið á útrétta sáttahönd meiri hluta nefndarmanna í sérnefnd um stjórnarskrármál.

