Atli Gíslason fjallar um jafnréttislögin
Í tilefni af þrjátíu ára afmæli jafnréttislaganna stendur Mannréttindastofnun HÍ og Rannsóknastofa í kvenna og kynjafræðum fyrir málþingi næstkomandi föstudag, 9. febrúar kl. 13.30 í stofu 101 í Odda.
Jafnréttislög voru fyrst sett árið 1976 og urðu því 30 ára á síðasta ári. Lögin eru nú til endurskoðunar og því kjörið tækifæri til að vega þau og meta, ræða reynsluna af þeim og nauðsynlegar breytingar.
Dagskrá:
13.30 ? 13.40 Setning: Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra.
13.40 ? 14.00 Brynhildur Flóvenz lektor: ?Jafnréttislög í 30 ár ? Framfarir eða falskt öryggi?"
14.00 ? 14.20 Atli Gíslason lögmaður: ?Jafnréttislög: Eftirlitsheimildir og kæruleiðir"
14.20 ? 14.40 Björg Thorarensen prófessor: ?Alþjóðlegar kæruleiðir vegna kynjamisréttis"
14.40 ? 15.30: Pallborðsumræður.
Þátttakendur: Elsa Þorkelsdóttir lögfræðingur, Ólafur Stephensen blaðamaður, Sif Konráðsdóttir lögmaður og Sigríður Lillý Baldursdóttir sviðsstjóri þróunardeildar Tryggingastofnunar ríkisins.
Máþingsstjóri: Kristín Ástgeirsdóttir forstöðumaður Rannsóknastofu í kvenna-og kynjafræðum við Háskóla Íslands.

