Vinstri græn opna í Hafnargötu í Keflavík
Síðastliðinn fimmtudag 9. apríl opnaði kosningamiðstöð Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs með pompi og prakt að Hafnargötu 36 a í Reykjanesbæ. Boðið var upp á pylsur, kaffi og meðlæti sem rann ljúflega í viðstadda. Atli Gíslason, fyrsti maður lista V.G. í Suðurkjördæmi, ávarpaði samkunduna, ásamt Kolbrúnu Halldórsdóttur umhverfisráðherra og Bergi Sigurðssyni sem prýðir 4. sæti listans. Margt var um manninn og mikil stemmning í fólki fram eftir degi. Skrifstofan er opin daglega frá klukkan 13.00 og eru lesendur hvattir til að heilsa upp á frambjóðendur þar og fá sér kaffisopa og spjall.

